28.2.07

Síðan ég vaknaði um morguninn

...ok komst framúr rúminu hef ég verið ónýt og ég er að tala um sl. sunnudagsmorgun. Gersamlega til vandræða. Ég hef ekki gert handtak á heimilinu annað en að þvo sama þvottinn sem er í vélinni svona 19 sinnum. Mér er svo kallt að í dag fór ég í ullarnærbol af unnustanum í vinnuna. Sat í leðurjakkanum með loparpeysuna framan á mér í angórusokkunum klesst upp við ofninn. Var farin að finna sviðalykt af mínum eigin tám þegar ég rankaði við mér. Held að heilsasystemið sé eitthvað skrítið líka, ég líð um eins og vofa. Ljót vofa.

Annars er bara andskotanum minna að frétta. Fór með drenginn á Vitabar og keypti í matinn (jájá maður er að ná botninum) hlaut að koma einhver dýfa eftir sl. viku þar sem að ég borðaði hollt og fór í ræktina alla daga. Hreiðar Nói var hinn ánægðasti eftir matinn settist kátur við barinn meðan var verið að elda, þakkaði svo vel fyrir matinn og sagði að þetta hefði verið mjööög gott. Það fynda var að hann var ekki búin að borða neitt, ég var með matinn í poka og gaf honum þegar heim kom. Nægjusamur þessi elska;)

Jæja best að fara að sofa, nema ég láti slag standa og rífi þvottinn úr vélinni???
Er annars ekkert að frétta eru allir að frjósa einhversstaðar fastir?

27.2.07

Ástin hjá unga fólkinu


Á laugardögum skrifar Þráinn Bertelsson í Fréttablaðið. Sl. laugardag segir hann frá að Sólin sem er barnabarnið hans sé sennilegast orðin ástfangin. Að minnsta kosti sé henni tíðrætt um ákveðin ungan mann. Þegar Þráinn kemur að ná í skvísuna nýlega hvíslar hann að fóstrunni " Og hver er svo þessi Hreiðar Nói?"

Mér fannst þetta eitthvað svo sætt. Solla og Nói byrjuðu í sömu viku í leikskólanum og léku sér alltaf saman en síðan í haust hafa þau ekki verið saman á deild. Þrátt fyrir þetta hefur vinskapurinn haldist svo um er skrifaði í blöðin og talað um heimavið;)

Hér er svo mynd af þeim frá öskudeginum í fyrra en þá tók hún vel á móti Nóanum og hann nokkuð glaður að sjá Sollu sína eins og sjá má.

Því var slengt í andlitið á föður mínum

að ég hafi rifið dálítið mikinn kjaft á háskólaárunum. Ég gat ekki annað en glott, held að hann hafi gert það líka...

Hadda að rífa kjaft???? held það bara hafi varla gerst.

26.2.07

Maður í rúminu mínu

Það var maður í rúminu mínu í gær þegar ég vaknaði. Kom honum ekki út fyrr en um kvöldmat. Timburmaður. Ógeðslega leiðinlegur. Djefillinn er maður aðessu???

Talaði mig inná Nasa á laugardagskvöldið, hef lúmskt gaman aðessu, fór líka í 10-11 á sunnudagsmorguninn. Fékk sýnishorn af mat þarna. Röflaði á Ölstofunni, pissaði á kaffi París.
Ég ætla ekki út að skemmta mér fyrr en næsta sumar... Borðaði á Vegamótum, röflaði um yfirdrátt, raðgreiðslur og bankaþjónustu almennt.... jesúsminnalmáttugur....

Vaknaði rétt nógu snemma til að tannbursta mig áður en ég fór í vinnuna í morgun, Nóinn minn enn á Akureyri og ég hlakka svooooo til að fá hann í hendurnar í kveld. Skil ekki hvernig pabbinn fer að þessu...

Annars væri ég svo til í að fara aðeins norður, kannski maður komi því við áður en farið verður í erlendis í byrjun apríl.

eigið góðan mánudag, minn er ekkert spes.

20.2.07

Fyrsti öskudagurinn


hér er þessi elska á leið í bæinn á fyrsta öskudeginum með Silju Sól dóttir Ernu Hrannar sönkonunnar geðþekku;) Þarna er hanm í samfylkingarbol af mér hehehehh það myndi sennilega ekki duga í fyrramálið.
Batman búningurinn hangir hérna til þerris, og Hreiðar Nói bíður spenntur eftir að klæða sig uppá og þramma í leikskólann. Set inn myndir af honum á morgun!
Þið getið séð meira af ofurhetjunni hér

Allir hressir, þreyta sökum líkamsræktar gerir vart við sig, mikið að gera í vinnunni, öskudagurinn á morgun og spennan í hámarki. Saltkjet og baunir - nei takk - reyndar er verið að baka hér rófur....

kyss af götu Bergþóru.

18.2.07

Dásamlegar þessar helgar

Elsku stelpur til hamingju með daginn, vonandi fenguð þið blóm og konfekt og góða bók í tilefni konudagsins;)

Kemst ekki yfir það hvað helgarfríin geta verið góð. Á föstudaginn var frúin sofnuð uppúr 20:00 örmagna eftir flensu og vinnu vikunnar. Hreiðar Nói var settur í háttinn líka og hlýddi móður sinni og sofnaði við það sama. Kl 7 eða 11 tímum síðar skreyddist ég framúr til að pissa en lá svo með syninum og dottaði til að verða 11 yfir barnaefninu. EKKI slæmt það! Eftir alla þessa hvíld fannst mér svo hress og leið svo dásamlega að finna ekki til þessara flensueinkenna að ég skellti mér í ræktina. Það var dásamlegt. Spikið í blóma og ég algerlega tilbúin að taka aðeins á því og reyna að byggja upp smá þol fyrir sumarið.

Núbb svo var það auðvitað mál málanna. Evróvisjonið - ánægð með Eika Hauks, hann fékk mitt atkvæði með annarra og á örugglega eftir að vinna keppnina ( er ekki best að koma bara strax með sigurspánna, við erum hvort eð er alltaf við það að vinna þetta ár eftir ár)
Við HNA fórum í júró partý í fjörðinn góða og áttum þar notalega kveldstund með heimilisfólkinu í Þrastarásnum. Takk fyrir okkur.

Í dag átti svo að vera dagur framkvæmdanna, við ætluðum að fara á þjóðminjasafnið en sökum þreytu unga mannsins var bara leikið hér fram að hádegi, tekinn langur blundur og svo farið til G/S en ég notaði líka tækifærið og fór aftur í ræktina. Klapp fyrir mér...
Núbb ekki nóg með að familían hafi passað fyrir mig átum við þau útá gaddinn og sungum svo með þeim eins og eina söngbók;)

Hreiðar Nói er ready fyrir öskudaginn, hann vann sér inn búning eftir flóknum leiðum og fékk langþráðan draum uppfylltan þegar hann fékk Batman búning á föstudaginn. Það er skemmst frá því að segja að hann hefur ekki farið útúr húsi í öðru en búningnum en hann er nú svo skítugur að ég verð að þvo hann svo hann komist í hann í leikskólann á öskudaginn. Hann hefur miklar áhyggjur af því hvað ég ætli að vera, fullviss um að pabbi sinn ætli að vera vampíra, bróðir hans Magnús sem að eigin sögn býr í Frakklandi hjá föður sínum ætlar að vera smábarn enda notar hann snuð og bleju og grenjar eins og smákrakki. Hreiðar Nói heldur líka að hann sé franskur.

Dásamleg blessuð börnin...

Kyss til ykkar og góða vinnuviku allihoppa!

15.2.07

My life as a sick dog

Jammm ég hef verið slöpp og lasin, var svona helvíti ánægð með mig fyrir um það bil viku að hafa ekki fallið fyrir flensunni. En NEI ekki var gamla konan svo heppin, þrátt fyrir að éta vítamín og lýsi á hverjum morgni.
Ég ætla í vinnu á morgun, tveir dagar heima eru svona eins og sex vikur í mínum huga. Alger viðbjóður að hanga hér heima, orkulaus og lasinn en samt að vinna eins og maður getur.

Annars er bara allt gott að frétta, Valentínusardagurinn í gær, ég fékk kort frá elskhuganum og það sem meira er að Hreiðar Nói fékk kort í tilefni dagsins frá vinkonu sinni á leikskólanum. Frekar amerískt enda stúlkan þaðan upprunin. Samt gott að vita til þess að við mægðinin séum elskuð þvers og kruss yfir hnöttinn;)

Núbbb annars er Njálsborg að berjast við Njálg. Njálgsborg kalla ég því leikskólann þessa dagana, við Hreiðar Nói erum því með tuskuna á lofti alla daga, bað og rassaþvottur, klósett og vaskar þrifnir og hreint á rúmin annan hvern dag. Við erum samt ekki með Njálg. En í þessum efnum tek ég sko enga sjensa. Mér varð samt illt af öllum þessum töflum sem ég þurfti að taka við þessum ógeðslega gesti.

Annars er líf mitt í frekar óskipulagðri kaos þessa dagana, stundum er ég ánægð með allar ákvarðanirnar sem ég hef tekið en hina stundina er ég í panikk ástandi sem lýsir sér í oföndum og djúpum svefni...hehehe
Amk er ég bara hress, það er eins og það á að vera maður verður bara að vera hrezzz

Hreiðar Nói er farinn að tjá sig á leikskólanum ( HA, myndu kannski einhverjir hugsa) en það var einmitt mál málanna á foreldrafundi í okt eða nóv að barnið mitt væri alltof þægt, hlýddi alltaf og myndi aldrei tjá sig nema að fegnu leyfi. Útskýrði margt fyrir mér enda töluð í kaf í hvert skipti sem ég sótti hann á leikskólann. Nú er hann semsagt farinn að tala á öllum stöðum. Problem solved.

Eurovision um helgina. Alveg að missa húmorinn fyrir þessari vitleysu. Hækkum frekar kennaralaunin og sleppum Euro.

Annars bara stemning, styttist í útlönd onlý six weeks;)

10.2.07

10.febrúar 2007

Og hann Ævar minn elskulegi frændi á afmæli í dag. 15 ár síðan snáðinn kom í heiminn og verður bara æ yndislegri með hverjum deginum sem líður;)

Sjálf átti ég leik í gær, finnst þessi tala eitthvað of há! 29 ára og fnnst ég alltaf jafn ung, þess vegna bregður mér iðulega þegar ég lít í spegil.. ó bój. Dagurinn var ánægjulegur í flest alla staði, byrjaði dásamlega þegar ég var vakin með köku með kertaljósum og pakka. Fékk táknræna afmælisgjöf ;)nebblega vekjaraklukku... Snoozið er að gera alla geðveika á heimilinu og fannst mér það eiginlega ná hámarki þegar Nóinn heyrðist söngla vekjara "lagið" sem ómar svona þúsund sinnum að morgni úr símanum mínum heheh

Eftir fundahrynu dauðans sem fór fram í vinnunni þennan afmælisdaginn fór ég í afmæliskaffi til Möggu Móðu, bauð engum...FYI;) Núbb eftir það var haldið á Vitabarinn, sem er að mér vitandi best gleymda leyndarmálið í Reykjavík.. Þar sat rjómi þotuliðsins að sumbli langt fram á nótt þar til farið var á Ölstofuna... Þaðan hljóp ég svo heim, heima er best!!!!
Fínn afmælisdagur - þakka öll SMS- in og hringingarnar, alltaf mest gaman að fá skilaboð og hringingar frá þeim sem maður heyrir sjaldan í. Hinsvegar hef ég ákveðið að senda ekki sms þegar vinir mínir eiga afmæli heldur hringja í þá framvegis og þannig sporna við þessum sms-samskiptum sem ég er að fá ógeð á...
Held þetta hafi náð hámarki í gær þegar ég fékk eftirfarandi SMS:
"Til hamingu með daginn Hadda, starfsfólk Atlantsolíu"
En ekki misskilja, það var gaman að fá SMS---- jú nó watt I mín

10.febrúar 2007

Og hann Ævar minn elskulegi frændi á afmæli í dag. 15 ár síðan snáðinn kom í heiminn og verður bara æ yndislegri með hverjum deginum sem líður;)

Sjálf átti ég leik í gær, finnst ég að verða eitthvað aðeins of gömul 29 ára og finnst ég alltaf jafn ung, þess vegna bregður mér iðulega þegar ég lít í spegil.. ó bój. Dagurinn var ánægjulegur í flest alla staði, byrjaði dásamlega þegar ég var vakin með köku með kertaljósum og pakka. Fékk táknræna afmælisgjöf ;)nebblega vekjaraklukku... Snoozið er að gera alla geðveika á heimilinu og fannst mér það eiginlega ná hámarki þegar Nóinn heyrðist söngla vekjara "lagið" sem ómar svona þúsund sinnum að morgni úr símanum mínum heheh

Eftir fundahrynu dauðans sem fór fram í vinnunni þennan afmælisdaginn fór ég í afmæliskaffi til Möggu Móðu, bauð engum...FYI;) Núbb eftir það var haldið á Vitabarinn, sem er að mér vitandi best gleymda leyndarmálið í Reykjavík.. Þar sat rjómi þotuliðsins að sumbli langt fram á nótt þar til farið var á Ölstofuna... Þaðan hljóp ég svo heim, heima er best!!!!
Fínn afmælisdagur - þakka öll SMS- in og hringingarnar, alltaf mest gaman að fá skilaboð og hringingar frá þeim sem maður heyrir sjaldan í. Hinsvegar hef ég ákveðið að senda ekki sms þegar vinir mínir eiga afmæli heldur hringja í þá framvegis og þannig sporna við þessum sms-samskiptum sem ég er að fá ógeð á...
Held þetta hafi náð hámarki í gær þegar ég fékk eftirfarandi SMS:
"Til hamingu með daginn Hadda, starfsfólk Atlantsolíu"
En ekki misskilja, það var gaman að fá SMS---- jú nó watt I mín

4.2.07

Flugvélar

Í dag fór ég í mitt 12 flugtak og lendingu síðan 22. desember... væri eðlilegt ef ég væri kannski að læra að fljúga en svo er víst ekki. Ég þvælist greinilega bara svona mikið um....
Kom til RVK í dag eftir 4 daga á Akureyrinni. Drengurinn eyrarörum og nefkirtlum fátækari og ég nokkrum þúsundköllum. Eftir að við lentum um hádegi höfum við nýtt daginn vel, farið í brunch á gráa kettinum, kaffihús, leikhús, lagt okkur og erum á leið í matarboð. Já það er ekki hægt að kvarta yfir aðgerðarleysi í dag...

29.1.07

maður er allur að koma til

Með ljótu hárgreiðsluna, já já eins og meistarinn sagði vont en það venst...
Nú er ég líka eldrauð í framan eftir ljósatíma hádegishlésins...
Fór á árshátíðina um helgina, með húfu.. Nei nei ég var ekkert með húfu, bara með hausverk. Svo mikinn að ég þurfti að einbeita mér að því að anda... Adam skemmti sér betur en ég, það fannst mér eiginlega fyndið. En heim komst ég og undir sæng og höfuðverkurinn er svona á undanhaldi...

Annars er bara allt gott af mér að frétta eða þannig, á leið til Akureyrar með piltinn minn þar sem rífa á úr honum rör í eyrum og nefkirtla... Litla skinnið, en mamma og pabbi verða ekki langt undan til að dekra við hann að lokinni aðgerð...

Eruðið samt að grínast með verð á flugi innanlands.... eins gott að maður er með milljón á mánuði.

Over and out...

23.1.07

Mikið er maður eitthvað viðkvæmur

Ég er ekkert að grínast með þetta, ég brá mér í klippingu í dag og held ég hafi bara aldrei aldrei aldrei aldrei verið jafn ógeðslega óánægð með neitt í svona 10 ár.
Ég er svo viðbjóðsleg útlits að það er ekkert venjulegt. Ég fór á kaffihús og var við það að kaupa húfu með kaffibollanum.
Hvað á ég að gera? Ekki fer ég þarna aftur, það er ekki eins og það sé eitthvað hár eftir til að laga. Kristur. Þegar maður er með hár niður á mitt bak og vill láta snyrta vil ég ekki labba út með hár sem endar við háls...andSKOTINN OG EKKI ER ÉG MEÐ AUGU Í HNAKKANUM.
Sjitt ef ég gæti öskrað á bloggið, þyrftuð þið að slökkva á tölvunni ykkar, djöfulsins andskotans helvítis, ég fer ekki í klippingu aftur næsta árið... helvítis helvíti. Já mér er andskotans sama þó ég sé orðljót. Djöfull vildi ég að ég gæti spólað aftur um 24 tíma og hefði ekki komist í þessa andskotans klippingu.

Djöfull er ég í vondu skapi, allt útaf einni andskotans fokdýrri helvítis klippingu.
Sem betur fer er ég ein hérna, en stóra skottið kemur á morgun og það litla á fimmtudag svo það er eins gott að fá sér húfu og vera snöggur að því.

Árshátíð um helgina, MAGNAÐ, er ekki í tísku að vera með hatt.

18.1.07

Ég fyllist gremju

að horfa uppá fávita eins og Einar Odd Kristjánsson tjá sig. Þarna situr hann rogginn með sigog reynir að verja snarbrotið heilbrigðiskerfi sem snýr að vímuefnaneytendum á Íslandi.
Úrræðin eru fá á íslandi, ég á við fáar leiðir. Það er ekkert nóg að hafa menn á vakt sem vilja svo mikið hjálpa. Ég hefði alveg vilja til að vinna á líknandi deild og hjálpa deyjandi fólki, en vegna þess að ég hef ekki menntun og litla þekkingu læt ég mig ekki dreyma um að ganga í verk lækna og hjúkka og ráða mig til starfa.

Þetta viðbjóðslega birgismál er svo ógeðslegt í nafni drottins og þegar ég varð fyrir því að sjá Guðmund í Birginu nakinn með nánast rafknúna ryksugu í rassgatinu í myndbandi sem gekk manna á millum í dag varð ég bara döpur. Djöfulsins pervert og mannillska allt í nafni guðs og helvítis hallelúja....

Æi hvað er ég að rausa, ég sem bý við besta heilbrigðiskerfi í heimi, um leið og ég þakka vel fyrir að eiga ekki við vímuefnavanda að stríða eða lystarstol.

P.s ég er líka komin með ógeð á íslenskum stjórnmálamönnum. Má ekki skipta þessu liði bara út á einu bretti. Steingrímur Joð og Þorgerður Katrín, afsakið mig meðan ég bregð mér frá og gubba á sjónvarpið þvílík endemis leiðindi.

P.p.s ég er ekkert gröm.... svona hálfur mánuður og þá kem ég með stórt skúbbb

Ég las það í Mogganum

að Hreiðar Nói vann enn og aftur í Happdrætti Háskólans. Held maður ætti að breyta þessu í trompmiða og hætta að vinna;). Finnst þessi heppni orðin eitthvað óeðlileg.

13.1.07

Neibbb

Ekkert óeðlilegt lent í mínu toiletti síðustu daga, heheheh kannski ekki við að búast heldur. Ekki nema sniglarnir og sæhestarnir séu svona lengi að skolast út. Reyndar ekki komin mikil reynsla á þetta svo hver veit hvað skolast út um næstu helgi. Ég læt spennta lesendur vita....

Nóinn hefur verið lasinn, hann hefur hinsvegar notað settið óspart;) Ótrúlegt magn af kvefi er að hrjá litla manninn og eftir að hafa verið inni síðan á fimmtudaginn fórum við aðeins út í dag.

Skruppum í Bónus og mikið sem ég er til í að styðja hana Allý í sínum sparnaðaraðgerðum til mótmælis við FÁRÁNLEGA hátt matvælaverð í þessu landi. Maður bara labbar ekki þarna inn fyrir minna en 7000 kall og aldrei er neitt verið að bruðla í matarinnkaupum. Ég er sko ekki að kaupa dýrustu bitana af lambinu, eða hreindýrafillet eins og sumir sem maður þekkir. Ég krydda ekki með einhverjum sérblönduðum villidásemdarkryddiblöndum og drekk léttvín á hverju kvöldi. Maður er að kaupa þetta venjulega, bónusbrauð, klípu, ost, skyr, ýsubita (reyndar roðogbeinhreinsaða) mjólk ávexti og grænmeti. Og mér ofbýður verðið. Svo er alveg dásamlegt að heyra talað um lækkaða skatta á mat, þegar heildsalarnir og smásalarnir hækka svo bara sínar vörur svo að enginn græðir nokkurn skapaðan hlut.
Æi það borgar sig ekkert að vera að fá hjartatruflanir yfir þessu, maður á amk fyrir því helsta og getur setið við sitt eldhúsborð og gúffað i sig, það eru svo langt frá því allir sem geta það.

Annars minnir eldhúsborðið mig á það! MIKIÐ djefill er ég komin með mikið ógeð á að búa ekki í mínu eigin húsnæði. Djöfull hlakkar mig til að flytja héðan;) og það bráðlega vúhú... Spítalavegurinn minn er til sölu, það er með trega í hjarta sem ég sel þessa yndislegu eign en það er víst tími til komin að sætta sig við það að á Akureyri mun ég ekki koma til með að búa og ég fer ekkert með húsið. Ylja mér bara við fallegar minningar úr Spító og hlakka til að leyfa einhverjum öðrum en mér og leigendum mínum að líða vel þarna...
Díssusss þetta blogg hljómar eins og ég sé frelsuð...

Annars fjárfesti ég í kápu í dag, ljósgrárri.. En að velta fyrir mér litnum - ofurpæjuleg kápa samt;)
Annars er ekkert að frétta annað en að uppvaskið bíður í ofvæni eftir mér og ég hlakka til smella mér í beddann svona á laugardagskveldi. Ótrúlega fyndið að hugsa til þess að ég hafi virkilega djammað hverja einustu helgi, föstudag og laugardag hérna í "denn" og haldið að þegar ég yrði móðir myndi ég sitja grenjandi heima því mig langaði svo mikið á djammið. Þvílík fjarstæða hehehhe reyndar mætti kannski vera smá millivegur á þessu... Ætti kannski að smella mér út við og við, reyndar eru allir steinhætti að bjóða mér í partý eða með út á lífið, og finnst það hreint ekki skrítið;)

Heima er gott að vera og á meðan mér finnst það, ætla ég að sitja hér sem fastast á mínum feita rassi....
Njótið helgarinn og lifið heil...

11.1.07

Heilsan maður heilsan

* Varúð þessi pistill verður kannski ekki fyrir viðkvæma.
Góð heilsa er gulli betri. Það er alltaf betra að vera hress, það finnst mér að minnsta kosti.
Í dag hefur heilsa mín ekki verið uppá marga fiska, með hausverk dauðans, eins og slegið sé á gagnaugað á mér reglulega, með þrýsting í hægra auga og eins og þrýst sé þéttu taki á kverkarnar á mér. Jább þannig hausverk fæ ég og ég hata slíka daga. Auk þessa er mér illt í maganum og öll slöpp og ómöguleg. Maginn þemst út (lít út fyrir að vera kominn svona 5-6 mánuði á leið) og ég verð föl og veikindaleg.

Ef ég sofna, vakna ég með meiri hausverk, ef ég fer í bað, finn ég hvernig hann hreinlega magnast við hitann og mér verður óglatt. Ég veit samt afhverju þetta stafar svona nokkurnveginn. Ég er afar viðkvæm fyrir fæðunni sem ég læt ofaní mig og viðbrögðin láta sko ekki á sér standa. Ég er viðkvæm fyrir nánast öllum kolvetnum, kartöflum, hrísgrjónum, sælgæti fer ílla í mig, áfengi, brauð, pasta og eiginlega get ég bara sagt að hveiti arða getur og hefur komið mér inná sjúkrahús.
Verra er að ég er sjúk í þesssa fæðu, finnst fátt betra en kartöflur, hríshrjón með sojasósu, gott naan brauð og svo framvegis.
Nú er svo komið að óþolið hefur náð hámarki og dagurinn í dag verið hreint helvíti. Núna verð ég semsagt að "hreinsa mig" og reyna að koma starfseminni í sæmilegt horf. Það geri ég með því að sneiða hjá þessari fæðu og borða ávexti, grænmeti, fisk, kjöt, drekka mikið vatn og taka vítamín. Eins gerir það mér auðvitað gott að hreyfa mig til að starfsemin fari enn betur af stað.

Hljómar einfalt og gerlegt, en djöfull fell ég oft í þetta, svona miðað við að vera greind stúlka sem ætti að geta haft vit fyrir sér.

Í dag átti ég samtal við barnsföðurinn. Hann segir mér að ég sé ekkert eðlilega slöpp og verði hreinlega að fara til læknis, bauðst til að borga ferð til doksa, en ég útskýri fyrir honum það sem ég hef skrifað hér að ofan /hann þekkir náttlega Höddu í kolvetnalandinu Bretland vel;).
Þá segir hann mér að fara nú í búðina á horninu þar sem hann kaupi sitt jógate og kaupa mér detox te og drekka yfir daginn, ég segist gera það og kem þar við áður en ég náði í Hreiðar Nóa á leikskólann.
Ég ráfa þarna um þessa litlu sætu lífrænu okurbúllu, vel mér detox te, vítamín, einhverja voða góða olíu og þegar ég kem að kassanum kem ég auga á bækling "Ristiltvenna", hhmmmm hugsa ég kannski þetta sé eitthvað fyrir mig til að hjálpa mér...
Spyr karlinn þarna og hann dásamar þetta á alla kanta og út fer ég, enn fátækar með 100 töflur sem á að éta á 10 dögum. Áðan fékk ég mér svo detoxte og les mér til um ristiltvennuna, 1. hluta. Mér skaut skelk í bringu þegar ég las ummæli konu einnar sem lokið hafði kúrnum en hún hafði þetta að segja
" Eftir ristilkúrinn líður mér svo vel og ég er full orku, það er eins og ég hafi farið í líffæraskrúbb og spúlun, þvílíkur munur! Var á kúrnum í meira en mánuð og það leið ekki sá dagur án þess að eitthvað verulega einkennilegt var losað úr í salernið! Mikið slím, kögglar sem líktust soðinni lifur, langir samantvinnaðir drjólar eins og kaðlar og fremur ógeðfelld snýkjudýr eða ormar! Alveg hræðilegt. En á eftir, hvílík vellíðan"

Er þetta grín haldiði? Fer ég að kúka rottum og snæsniglum?? Ég veit ekki hvort ég þori að taka þetta inn, soðin lifur anyone??
Ég fann bara hvernig kjálkinn seig niður á bringu, svo er þarna önnur sambærileg ummæli og einhversstaðar í bæklingum las ég að Rokkkóngurinn Elvis hafi látist úr hjartaáfalli sem harðlífi hafi ollið enda maðurinn fullur af skít....

Jedúddamía, ég held ég verði eitthvað aðeins að skoða þetta. Vitið þið um einhvern sem hefur prófað þetta??

Jæja farin að sofa, vona að mig dreymi eitthvað fallegt!
Kyssss

10.1.07

Jebb she's back!

Komin heim í kuldann, frostið og vinnuna og jeeeeeeeeeeeminn ég grenja mig í svefn á kvöldin. Alveg sérlega mikið ótilbúin að koma heim eitthvað. Held það sé kuldinn, myrkrið og allt það svona í janúar.

Ferðin var yndisleg, bara dásamlegt fólk heim að sækja þetta Scott lið;) ég naut borgarinnar vel, fór ein í ýmsa göngutúra, margar labbiferðir með feðgunum mínum, hitti Þóru vinkonu mína Pé og hennar familíu, brá mér á "söngleik" ef söngleik skyldi kalla, fór heim í hléi, smellti mér á marga pöbba og róluvelli, heimsóknir á elliheimili og bíltúra um hina ýmsu króka og kima Lundína. Ég svaf út alla dagana;) oh eldaði fyrstu máltíðina síðan 10. desember í gærkveldi! Almennilegt frí það! Keypti mér þá droppfookinggordjösss tösku sem ég hef á ævinni séð, ískraði í mér og ég hneig nánast niður þegar ég sá þessa elsku og það gat ekkert mig stöðvað á Portobello Road, Adam skipað í hraðbanka meðan ég fór í skóbúð þar sem ég átti frátekna skó ( Ef þetta lýsir mér ekki í hnotskurn!) En þarna var jólagjöf foreldranna komin algerlega geeeeeeeðveik taska og gullfallegir leðurskór, heppin? Ójá Hadda og stjarnan.

Flugið heim gekk vel þrátt fyrir að vera á ókristilegum tíma. Ég þurfti semsagt að vakna snemma heheh það borgar sig ekki að hafa það of gott.

Nú er hinsvegar hið vanalega líf tekið við, leikskóli, vinna og allt það og um að gera að njóta þess bara. Styttist í árshátíð okkar, sem verður að þessu sinni haldin með 365, Senu og Sagafilm en svo stefni D3 líka á utanlandsferð á næstu mánuðum, ekki þykir mér það nú verra...

Jæja ætla að smella mér í beddann og lesa stafakarlana, eeeeeeeeeeeee fyrir epli;)

Kyss til ykkar, látið nú heyra í ykkur snúllurnar mínar..
P.s Sérstakan koss sendi ég til Selmu minnar....

3.1.07

Sjitttttt

ef að slíkt át og hefur átt sér stað fyrstu þrjá dagana af árinu heldur áfram er ég á leið á sjúkrahús með vöruflutningabíl vegna ofátu og spiks. Ómægod, segi ekki annað.

Ligg hér í vellystingum, var að standa upp frá 3 og hálfs tíma borðhaldi, kæmi ekki niður c vítamíntöflu til viðbótar ég er svo södd. Á sennilega eftir að dreyma einhvern andskotann í nótt en það gerist iðulega þegar ég sofna södd.

Margt að frétta, veit ekki hvar ég á að byrja, kannski maður haldi sig bara á mottunni. Var rænd í gær, á eigin heimili eða þannig.. Fokkings húshjálpin hérna stal af okkur 100 pundum, enginn trúir því uppá neinn náttlega svo ég hef eytt ómældum tíma í að leita að peningum sem lágu á bók við rúmstokkinn. Enginn fór inní herbergið þar sem að Nói og Adam voru úti að leika og ég inni að vinna. Þá fer beljan hér inn býr um rúmið og ákveður að þrefalda launin sín í leiðinni. Hún er að minnsta kosti atvinnulaus núna. Verra að þetta voru peningar sem Hreiðar Nói fékk frá langafa sínum og átti að fara í eitthvað fallegt, EN ekki í bili amk.

Reyndi að versla í dag, það gekk ekki vel, kom heim með blejur og smá pakka handa Adam, ég er alveg vonlaus í versluninni. Held ég éti bara frekar af mér eins og 15 kg og fari með Selmunni til NY, helli mig fulla og strolli í búðir með henni. Hmmmm hvað segiru um það Selman mín. Missi bara lífslöngunina inní þessum búðarklösum.

Annars uppljóstra ég öðrum leyndarmálum og lífsplönum Höddunar seinna, ætla að smella mér í bað og líta svo á seinni hluta skaupsins?
Hvað fannst ykkur annars um það, ég verð að vera neikvæð varðandi fyrrihlutann, hló minni mig bara af Jóni Gnarr, fannst Brynja Börk dáldið fyndið líka heheh

Leitör