7.4.04
Blogg
Nú mega allir breyta tengingu á mig, því ég er hætt að blogga hér og farin að þar.... Verið svo dugleg að kommenta á hinum staðnum.........
4.4.04
Hún er á leiðinni
þessi elska. Get ekki beðið eftir að rumpa ritgerðinni af, það verður leikur einn með hana í klofinu.... Bið að heilsa frá Sun City
3.4.04
Sonur
minn er búin að uppgvöta spiladós sem hangir á rúminu hans, þeir sem þekkja til hans vita að hann er þokkalega virkur og það sést berlega núna. Spiladósin þagnar ekki og hann togar í spottann á svona þriggja sekúndna fresti.... ég er kominn með ÓGEÐ á þessari vögguvísu sem hljómar um íbúðina.
Spaug
stofan er sá ömurlegasti þáttur sem um getur í íslensku sjónvarpi, hversu sorglegt er að 70% þjóðarinnar skuli sitja og horfa á þetta og hlæja.............
Annars er ég að drepast ofaní klofið á mér og, ætti að vera að gera fyrirlestur í markaðslegri boðmiðlun en er að hugsa um að horfa frekar á söngkeppni framhaldsskólana... er verzló með?? ekki nema sjö ár síðan ég keppti fyrir MA, iss hvað tíminn flýgur

2.4.04
Létt lund
henti mér í ræktina í dag, hef ekki farið í svona þrjár vikur og ætlaði mér sko ekki á vigtina, enda lifað á kaffisúkkulaði síðustu vikur... en vitið menn ég hef ekkert þyngst, nú sé ég enga ástæðu til að hætta að borða kaffisúkkulaði og vera að þvælast í ræktina!!
Pressan
á lokaritgerðina fyrir 10. apríl er orðin ískyggileg, ekki nóg með páskaeggið og rauðvínið, heldur er einnig í húfi dinner með matarklúbbnum Fánar sem ég ku vera meðlimur í..... Klúbburinn var stofnaður 22. september 1998 í tíma í H6 í MA, já svona er ég nú viðbjóðslega minnug á það sem skiptir litlu máli, eða nei annars það eru litli atriðin sem skipta mestu máli í lífinu. Klúbburinn samanstendur af mér, Kjartani Smára og Þóru Pé, einhverntímann var nú tekin ákvörðun um það að makar fengju ekki að vera með fyrr en allir væru lofaðir, en ég held ég verði að beygja mig fyrir þeirri reglu... Get þá jafnvel notað tímann í að finna mér maka eða ekki!! Kannski ég noti tímann og finni maka 10. apríl (eftir matinn)... Þá ætti ég ekki að vera í neinni hættu í prófunum í maí, ég meina ég er búinn að finna hann..á bara eftir að komast að því hvar hann býr:-)
1.4.04
Veikindi
Pöddur og aðrar bakteríur, drullist heim til ykkar og leggið ykkur. Konurnar í apótekinu bentu mér á að fá styrk hjá tryggingastofnun vegna lyfjakaupa á skömmum tíma!! Barnið er enn veikt og fór heima fimm daga til dagmömmunar í mars, fyrir það greiði ég sexþúsund kall daginn sem er heví.... fyrir mig.. Svo kannski það sé skiljanlegt að það séu komnar 7 blaðsíður í lokaverkefnið okkar, reyndar sjö blaðsíðum meir en í gær svo það er gott mál.
EN það er komið skriflegt markmið, 10. apríl verður fræðilegi hlutinn tilbúinn, þá mun ég Hadda Hreiðarsdóttir fá mér rauðvín og bjór og henda mér útá lífið. BARA ef fræðilegi hlutinn verður tilbúinn reyndar, svo ég er undir mikilli pressu rauðvínsflöskunnar, sem er einungis jákvæð pressa í þetta skiptið..
Annars er ekkert að frétta ég fer bara uppá spítala og í Bónus og þar gerist nú ekkert merkilegt, nema að páskaeggin eru á hlægilegu verði í Bónus, afhverju selja þeir ekki rauðvín líka!
Ég er að hugsa um að fara á morgun og fjárfesta í einni rauðvínsflösku og einu gildu páskaeggi og stilla því upp við tölvuna, ef ég klára fræðilega kaflann má ég ráðast á góssið, annars verð ég að gefa mömmu rauðvínið og bróður mínum páskaeggið. Fylgist því spennt með:-)

Auðvitað
Þetta er löngu sannað mál, bekkurinn minn úr MA er einfaldlega sá langflottasti í sögu skólans, djöfull sem ég get ekki beðið eftir að júbbílera, ég verð ekki mönnum sinnandi. Og afhverju er Háið flottast, jú auðvitað fyrst til að vera með 100 % skráningu á síðunni flottu
31.3.04
Brostu
Djöfull þoli ég ekki þegar allt gengur á afturfótunum og maður er kannski ekkert ógeðslega hress, þegar einhver sem þekkir mann ekki neitt segir manni að brosa!!!!!!!!!!!!!!!!
29.3.04
kRAFTAVERK
tÖLVAN MÍN LIFNAÐI VIÐ..... nÚ ER BEST AÐ GERA TILRAUN TIL AÐ TENGJA PRENTARANN MINN NÝJA, SKANNAN OG LJÓSRITUNARVÉLINA...
Bloddí mondei
Júbbídískúbbb lokaverkefnið miðar til helvítis, en lítum á björtu hliðarnar þegar við náum botninum í ruglinu þá er leiðin einungis uppá við....
Tölvan mín er ónýt sem þýðir að ég get ekki verið heima hjá mér á kvöldin!! Ef einhver vill lána mér tölvu í svona fjórtán daga!!! Væri það gríðarlega vel þegið:-) Foreldar mínir hafa semsagt þurft að þola mig síðustu daga og spurning hvort að MH-ingurinn sem hringdi heim til þeirra í gærkvöldi í "annarlegu" ástandi og vildi ræða við mig úrslit MORFÍS hafi vitað það líka... usss að fólk skuli halda að ég hafi einhvað rosalega á móti einhverjum framhaldsskóla í Reykjavík. 'Eg ber hreinlega engar tilfinningar til einhverra menntastofnana og gæti ekki verið meira sama hver vinnur MORFÍS eða Gettu betur, get reyndar ímyndað mér að það sé viðbjóður að tapa MORFÍS með einu stigi og vera þremur stigum frá því að vera Ræðumaður 'Islands, en það er nú samt líf eftir MORFÍS. Ég á vini sem hafa verið í MH, Verzló, MR og flest öllum þessum skólum og jahérna ef ég á að fara að halda með einhverjum framhaldsskóla af lífi og sál þá er eitthvað að mér! Ég er 26 ára, í háskólanámi og sennilega að vaxa uppúr framhaldsskólarígnum.... Vona bara að hressi MH-ingurinn lesi bloggið mitt, því nóg er drullað yfir mig á bloggsíðum þeirra svo þeir séu nú ekki að trufla aldraða foreldra mína....
Jæja bakk tú vork.... það er víst nó að gera, hlakka til að hitta alla 13. maí:-)

28.3.04
Eitt stig
Já úrslit MORFÍS í ár voru æðisgengin. Og ég ku vera konan sem MH-ingar hata. Ekki gott mál það. Ég var eini dómarinn sem dæmdi versló sigur og það heil 17 stig (að mig minnir) sem er náttúrulega ekki neitt, hinir dómararnir tveir dæmdu MH sigur nokkur stig hvor og þegar refsistig komu inní leikinn var staðan þessi 1 stig og verzló vann. Nú eru margir pottþéttir á því að ég hati MH og hafi flogið suður gagngert þeim þeim tilgangi að koma í veg fyrir sigur MH-inga- Sem er náttúrulega kolrangt. Ég er ekki svo heimsk að ég sé að dæma ræðukeppni og búin að ákveða fyrirfram hver vinnur og afhverju ætti mér líka ekki að vera sama!! Eftir keppnina vissi enginn dómaranna hvaða lið var að vinna keppnina. Hæst dæmdi ræðumaður kvölsins hjá mér var Atli Bollason úr MH við vorum tvö sem dæmdum hann hæstan en ræðumaður Íslands varð engu að síður stuðningsmaður Verzló. Atli Bollason er ákaflega sjarmerandi ræðumaður, en hinsvegar var það meðmælandi HM sem stóð sig ekki eins vel í fyrri umferð og þ.a.l dæmdi ég hann ekki mjög hátt fyrir sína ræðu. Keppnin var hnífjöfn og eitt stig segir allt segja þarf. Mér er alveg nákvæmlega sama hvort lið verzló eða MH hampaði titlinum, nákvæmlega sama! Ég óska verzlingum og MH-ingum til hamingju með glæsilega ræðukeppni, einhverja þá glæsilegustu sem ég hef orðið vitni að...
27.3.04
Júbb
Mín er í borg óttans, lifði nóttina af og þurfti ekki að fara heim með sjúkraflugi.... ég er hinsvegar á leiðinni heim með flugi klukkan fimm og hlakka til... P.S Kristjana ég kem með prentara!!!
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)